
Crazy boyssssss í gær. Textarnir verða til um leið og söngvarinn hefur upp raustina. Þeir eru á ensku eins og hjá öðrum mikilsmetnum rokkurum. Heyra má áhrif frá ungum tónlistarmönnum eins og Þóri og fleirum angurværum af hans sauðahúsi :) í bland við ,,lose yourself'' frá Eminem.
SeliFló hefur jafnað sig í fætinum, lenti hins vegar í þeim hremmingum að vera kallaður til tannlæknis þegar hann mætti í skólann, aldrei friður. Ekkert borað en boðaður, ásamt aldraðri móður sinni, í byrjun feb til specialtandlægen. Mikil angist yfir því, hvernig verður ,,lúkkið'' þegar geiflurnar verða innpakkaðar í vírarusl. Vantar ekkert.... nema þeim takist að klessa á mann hornspangargleraugum ogsa. Hvernig fer svo fólk að því að borða ostapopp og aðrar álíka mikilvægar fæðutegundir með túllan fullan af járni...................
Kvinders rettigheder, grænser i tid og rum heitir prodjektet lavet af Cristina, Myrru og Malenu. Sautján blaðsíðna prodjekt sem framlagt verður á þriðjudaginn í skólanum með tilheyrandi kreatívum útfærslum svo sem söng, búningum og veggspjöldum. Unnið hefur verið dag og nótt alla þessa viku og fólk orðið þreytt á bröltinu í þessum kellum þarna á árum áður. En hvað áttu konurnar að gera, engin Ophra sem gat sagt þeim hvernig lífið á að vera, enginn topp model þáttur sem hægt var að gleyma sinni aumu fílapensillögðu tilveru yfir, og enginn bachelor þáttur þar sem fólki er sýnt hvernig hin útvalda fær hinn útvalda með tiheyrandi rómantískum rekkjubrögðum og innihaldsríkum samskiptum. Það var ekkert til sem skiptir máli svo eitthvað varð kvenpeningurinn að gera.......
Í dag er bjart yfir. Hemmi hefur ekki farið margar ferðir til Skals í vikunni því veðrið sem barst hingað frá Islandi hefur ekki boðið uppá langferðalög. Ég kláraði að sauma pödduna, ruddist þá í prjónahönnun og prjónaði barn
apeysu með fiðrildum.
Valur kom í gær og setti upp ljós fyrir mig, auma kerling þorði ekki að gera það sjálf enda var þetta ekkert auðvelt...sko.
Um miðjan dag í gær bankaði hjá mér ungur maður. Eins og góðum sölumönnum sæmir ávarpaði drengurinn mig sem værum við vinir frá fornu fari. God god ég mundi ekkert eftir kauða sem von var því ég hef aldrei séð hann fyrr. Drengurinn kom akandi í vonda veðrinu alla leið frá Þýskalandi til þess að pranga inn á okkur aumu vesalingana íslenskri ýsu( sagðann) og lambalæri af sama þjóðerni. Allt var þetta á íslensku verði(eins billegt og það nú er) og auðvitað miklu betra en svínakjötið sem tröllríður öllu hér. Gúlp...ég lét freystast og keypti rándýrt lamb, klofaði svo skaflana heim með fangið fullt af smyglgóssi. Á eftir helltist yfir mig angist, hvað ef drengur fer nú að venja komur sínar til mín, úff gerir ráð fyrir því að ég verði fastakúnni, byggir alla sína afkomu á ketáti mínu og ég sem er ekkert sérstaklega sólgin í lambakjöt, er alveg ánægð með danskan Kalkún og kann allt eins vel að meta ormaþorskinn hér eins og íslenska Ýsu. Mér kom ekki blundur á brá eftir þetta og hef ekki ennþá fundið lausn. Verð sennilega að vera á vaktinni næstu ár og fara að ráðum Strúts á vík hinna endalausu you know.............
En eftir að ég fékk ljósin sé ég tilveruna í skarpara ljósi, skipulegg í gríð og erg hugmyndir og ritverk um mikilvæga hluti sem handavinnukennslu í skólum. Ætla að fara að gera eitthvað ,,af viti'' með hannyrðunum, vinna í ritgerð-um.

Ingen kommentarer:
Send en kommentar