Þetta er frábært nú getur maður algerlega fylgst með þér, líka hvað þú hugsar...skamm Pálína, míns má ekki við neinu, skíthrædd og sjálfandi reyni ég að halda úti menningarlegri bloggsíðu með erlendu fréttaívafi og þú gerir bara grín af mér. En ég læt þetta ekki slá mig útaf laginu, móast í þessu áfram :)
Í fréttum er þetta helst.
Blessuð börnin hafa átt afskaplega erfitt með að vakna á morgnanna eftir jólafríið. Axel barðist fyrir því í morgun að fá sig sjúkraskrifaðan, en varð að lúta í lægra haldi fyrir skassinu móður sinni, með það. Konan sú náði sér vel á strik, hélt ræðu sem allir pólitíkusar í framboði hefðu roðnað af öfund yfir, um skaðsemi leti, sjálfsvorkunar og allra annarra lasta sem hægt var að tvinna saman og stemma við tilefnið, svona snemma dags. Ræflarnir voru því fegnust að geta drifið sig í skólann.
Það er rigning og þoka. Ég hef farið á fætur kl 5 og 6 það sem af er þessa vikuna til þess að mæta í útsaumstíma í skólanum. Þvílíkur lúxus, sitja í sveitasælunni og bródera. Vona að ég vakni aldrei af þessum draumi.
Í gærkveldi ruddist ég ásamt stöllum mínum í listaklúbbnum, tja eða félaginu Waboose á fund í umræddum félagsskap. Mætingin var fremur slök, sex meðlimir, fjórar íslenskar og tvær danskar dúllur mættar. En fundurinn var fínn. Bríet og Sigurbjörg kynntu uppbyggingu á tilvonandi heimasíðu félagsins. Þær stöllur dreifðu einnig Waboose merki, sem Bríet hafði hannað og Valur sett upp, á límmiða. Þetta á þó allt eftir að vinna betur.
Waboose er hugarfóstur Sigurbjargar og Brietar. Markmiðið er að virkja meðlimi til að lifa lífinu á kreativan hátt. Listformin eru mismunandi, allt eftir áhuga og vilja meðlima.
Annað markmið er sýning( á vinnu meðlima) sem á að hafa hvetjandi áhrif á fólk til að skríða undan sófanum og ákveða að lifa lífinu á kreativan hátt (rétt eins og við :)).
Það sem af er hefur mest átt sér stað í skipulagsvinnu og bollaleggingum um félagið. Lítið gerst í innra starfi, sumir eru þó komnir örlítið af stað í leitinni af sínum innri listamanni. Sameiginlegt þema félagsins eru tilfinningar.
Nafnið Waboose stendur fyrir Nord. Nord star for visdom. Visdom far du af at kaste dig ud i livet med hele din krop og sjæl.
Svo er bara að sjá hvað kemur út úr þessu.
Crazy boys höfðu létta æfingu hér heima í gær, það voru bara tveir hljómsveitarmeðlimir mættir enda breytingum háð hversu margir spila í bandinu.
Ég var að reyna að setja inn myndir af humm...stórkostlegum útsaumsprufum mínum en það gengur ekki vel, það hlýtur að vera eitthvað að tölvunni..
Ingen kommentarer:
Send en kommentar