torsdag, januar 05, 2006

Rutebiler

Hér heita loftkökur rutebiler. Hvernig dettur þeim það í hug, eðlilegt að loftkökur heiti loftkökur þar sem þær eru fullar af lofti.... no já og í laginu eins og rútubílar... kannski. Ég var að glugga í blað sem keitir kulör, fæst gratis kun i Spar. Þar rakst ég á þessa ekki svo flóknu uppskrift. Skal familien forkæles i en fart, er denne lagkage sagen. Den tager fem minutter at lave. Pisk noget flodeskum, knus en pose rutebiler, smek det mellem tre lagkagebunde, pynt med almindelig glasur og farvet krymmel.
Á morgun eru jólin formlega búin, Þórir fer til Islands og ég verð alein heima. Af þeim sökum hefur botninn á mér staðið út úr öllum skápum í dag (hin árlega vörutalning) við árangurslitla leit af sætindum. Ekki til þess að borða, heldur til að losa mig við allan slíkan óþverra úr húsinu áður en fastan mikla brestur á. Við höfum staðið okkur með prýði...ekkert í skápunum nema 4 rutebiler, varla nóg í uppskriftina góðu svo..... vörutalningu er lokið og ég held bjartsýn, vonglöð og full af baráttuþreki í átt að hollari lifnaðarháttum.
Í Kulör rakst ég einnig á stjörnuspá, veit ekki hvað gengur að minni stjörnu þessa dagana, en hjá vandbæreren er ökonomisk overskud pa vej, men desværre er jeg ikke særligt sparsommelig, sa jeg skal tænke mig godt om, inden mine impulsköb bliver lidt for vilde........
jeg möder en modgang, hafði ætlað að skransa á útsölur og gera góð kaup.
Janúar hljóðar þá bara uppá vatn og brauð, hlaup og hnoð, úff og púff, hæðir og bætur.....

Valur var að grobba sig af heilum póstkassa fyrir stuttu, póstkassi nágrannans ein brunarúst, hehehe....Skömmu seinna hvað við ægileg sprenging, umhverfið lýstist upp og bréfasneplum rigndi yfir hverfið. Svona fer fyrir þeim sem hirða aldrei um að tæma kassann sinn, þarna voru örugglega ávísanir og ástarbréf í stórum stíl og svo tala ég ekki um öll tilboðin sem hann hefur tapað á að vita ekkert um. En hann byrjar árið með stæl.

Ég vona að það fari að vora

Ingen kommentarer: