tirsdag, januar 31, 2006


Ég átti afmæli í gær og fór þess vegna með muffins í skólann. Hér koma allir, alltaf með eitthvað þegar þeir eiga afmæli svo ég gat ekki skorast undan því. Gerði það þó fyrir aftan æðri endann á mér, ekki vegna þess að mig langaði ekki koma með bakkelsi eða svoleiðis heldur afþví ég þoli ekki þegar athyglin beinist að mér. Nú og flengi maður einhverju með fílusvip á borðið neyðist maður til að gefa upp tilefnið.
Þegar það var komið á hreint galaði ein skólasystirin, yfir allan sal, og hvað ertu svo gömul? Ég svaraði um hæl ,,to og firs''(tú og fjirs), það kom löng þögn og vinkonan starði á mig um stund, rétt eins og hún væri að bíða eftir einhverju.......
en svo fóru þær allar að hlæja :(
Hvernig er hægt að muna þetta talnabull hjá þeim, allt í lagi með ti, og tyve, tredive og förre eða fyrre en halv tres. tres, halv fjerds, firs og half fems??????

Ég var í fílu allan daginn.

Svona dagar taka á, en mér skilst að miðað við aldur (to og firs) haldi ég mér nokk vel.
En nú er kominn nýr dagur og ekkert sem ætti að raska þeirri innri ró sem ég hef þegar allt er eins og það á að vera, hafragrautur, skóli, lopahúfa, fréttir.......

Og takk fyrir kveðjurnar í gær þið elskulegu.

Ingen kommentarer: