onsdag, januar 04, 2006

Falafel

Við Þórir fórum ásamt Vali í bæinn um daginn. Með rauð nef, glamrandi tennur, garnagaul og freðnar tær hrökkluðumst við inn á pínulítinn veitingastað. Þar keyptum við okkur falafel í pítubrauði. Það bragðaðist svo vel að við Þórir nældum okkur í uppskrift og mölluðum réttinn.
Falafel:
3 lauf hvítlaukur
1/2 bolli parsley (steinselja)
1 og 1/2 bolli eldaðar kjúklingabaunir
1. msk. appelsínusafi
1. tsk. cumen
1/2 tsk basil, coriander, thyme
1/2 tsk hot pepper sósa
2 brauðsneiðar
1/2 bolli heilhveiti
1 msk græn virgin olía

Þetta allt sett í matvinnsluvélina. Úr hakkinu eru gerð buff eða hamborgarar.
Steikt á pönnu og sett síðan inn í pítubrauð ásamt því grænmeti sem hver og einn kýs að hafa með. Tvö meðal stór buff í hverja pítu.
Verði ykkur að góðu!

Ingen kommentarer: