onsdag, januar 04, 2006





Dk í dag

Ekki amalegt að hafa Þóri hér. Hann situr sveittur við að kenna móður sinni tæknilega hluti, því konur og tækni.........

Á fimmtudögum og laugardögum fyllast póstkassarnir af auglýsingarbæklingum. Á þessu gengur allt árið, ekki bara í jólavertíðinni. Tuttugu til þrjátíu bæklingar í viku sem ég þarf að skanna, hugsanlega leynist í þeim tilboð sem enginn getur látið fram hjá sér fara. Eftir markvissa skönnun í fjóra mánuði tel ég mig hafa öðlast töluverða innsýn í markaðsfræði. Kaupmenn er ráðandi öfl í tilveru neytandans, það er svo sem ekkert nýtt en ég hef aldrei áður fundið eins áþreifanlega fyrir því. Þær verslanir sem auglýsa hvað grimmast eru matvöruverslanir, fakta, kvikly, aldi, dreisler, super spar, super best, super super... Þessa vikuna bjóða allir uppá, fyrirsjáanlega..... baðvog á tombóluverði og póstkassa fyrir lítið. Póstkassinn minn var ekki sprengdur upp um áramótin en ég þrusast af stað eftir voginni, allt orðið svo leiðinlega strekkt á mér. En gríp í tómt... Kannski átti búðin aldrei meira en tíu baðvogir, og starfsfólkið keypti sjálft upp lagerinn, en úr því að ég er búin að kjaga 10 km eftir þessu þá versla ég bara í matinn, við kassann detta nokkrir pokar af MogM á tilboði, ofaní körfuna. Ég fékk hvort sem er enga baðvog, kaupmaðurinn kveður mig með bros á vör, eða var það skítaglott

Ég var að velta mér upp úr leiðinlegri stjörnuspá í gær, í dag hef ég ákveðið að nota Geðboðorðin 9 sem stjörnuspá fyrir árið 2006 og ég held að öll önnur merki geti bara gert það líka. Öll dýrin í skóginum eiga hvort sem er að vera vinir, heimsækja hvort annað og borða hnetur og fræ í stað þess að narta í náungann.

1 Hugsaðu jákvætt það er léttara

2 Lærðu af mistökum þínum

3 Flæktu ekki líf þitt að óþörfu

4 Reyndu að skilja og hvetja aðra

5 Finndu og ræktaðu hæfileika þína

6 Hlúðu að því sem þér þykir vænt um

7 Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir

8 Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina

9 Gefstu ekki upp, velgengni í lífinu er langhlaup

Ingen kommentarer: