fredag, januar 06, 2006

Skokk


Á dagsplaninu stóð, hlaupa í 30 mínútur.
Ég er ekki enn komin í hlaupaskóna og fer ekki að troða mér í þá úr þessu, komið kvöld, ekki hræða á ferli, snjóar, örugglega hálka......
Byrja bara á morgun, laugardagar eru svo heppilegir.

Þegar ég fór á lestarstöðina í morgun mætti ég skokkandi manni, ótrúlega gömlum og hann var ekki á sínu fyrsta skokki, svo mikið er víst. Sannir skokkarar láta ekkert stöðva sig. Fara út í öllum veðrum, við öll tækifæri, hvar sem þeir eru staddir í veröldinni.
En ég, get ekki haldið dampi ef eitthvað breytist, get bara skokkað þar sem ég á heima, helst alltaf á sama tíma og þoli engar breytingar. Jól t.d. raska öllu mínu jafnvægi, andlegu og líkamlegu.

Ég hleyp á morgun.

Ingen kommentarer: