Í gær fórum við mæðgur ásamt Vordísi í bæinn. Tilefnið var að kaupa efni í fermingarkjól Vordísar. Og það tók ekki langa stund. Ljósblátt satín og tjull var komið ofaní poka áður en langt um leið.Á heimleið rákum við nefið inn í Genbrug og þar fann ég þessa dásamlegu emeleruðu dalla. Planið var að hafa allan loppufjársjóð í grænu og hvítu. Er ákaflega veik fyrir dönskum sveitastíl. Pastel litir, handgerðir gamlir lúnir hlutir, blúndur, tré og sögur af lífi fólks fyrr á öldum. En þessir emeleruðu dallar eru jú frekar litsterkir..... Kannski ég leyfi áhrifum frá listakonunni Fridu gæta í hýbýlasmekk mínum og noti liti til að glæða lífið.........

,,Allt nyt strander pá, at der er præcedens for det gamle'' (Henningsen)
En nú fer ég og fæ mér göngu i sólinni, kem við hjá bróður og þvaðra við hann í stað þess að lafa hér. God vekend
Ingen kommentarer:
Send en kommentar