tirsdag, januar 03, 2006

Þriðjudagur

Frost og snjór, á Næssundvej skartar náttúran sínu fegursta. Tré og gróður hjúpað hvítu glimmeri frá náttúrunnar hendi, andrúmið með blæju úr gegnsæju siffoni. Andadráttur vegfarenda liðast um í logninu, líkt og reykur úr strompi Óla Lokbrá.
Ég var að lesa ársstjörnuspá þar sem segir, einkunnarorð Vatnsberans árið 2006 eru ,,opnaðu þig,, ........ ekki nóg með það heldur byrjar spáin á fullyrðingum um að Vatnsberar finni til svartsýni, séu til baka í samskiptum og hafi snertiþörf mikla. Fussum svei, svartsýni er ekki til í minum kokkabókum hvað þá hitt bullið.... það er ekkert að marka þessa stjörnuspá né stjörnuspár yfir höfuð, tja nema þær hljóði uppá endalausa sælu...
Ég ætla sjálf að semja stjörnuspána fyrir árið 2006.
Ég, ásamt skólasystur minni, keyrði 200 km. í gær til að mæta í skólann, samkvæmt stundatöflu. Það hafði gleymst að segja okkur frá breytingum sem gerðar voru á töflunni og skólinn var tómur, lokaður og læstur.
Það voru mínus 10 gráður, þoka, hálka og við.... eins og venjulega... á Hemma sem fékk um jólin nýtt púst og vekur því ekki eins mikla athygli og áður, en er ennþá silalegri, eldri og markeraðari en flestir bílar. Nýjasti kvilli Hemma eru ónýt þurrkublöð, hér í seltunni og sótinu á hraðbrautunum eru rúðuþurrkur lífsnauðsynlegar.
Í dag erum við í verkfalli til að mótmæla slæmri meðferð á okkur sem máttum keyra alla þessa leið með grútdrulluga rúðu. Við erum sko heima.........

Ingen kommentarer: