søndag, april 05, 2009

Það er ekki hægt að kvarta á dögum sem þessum. Sól og blíða, heimasætan komin í páskafrí og „I love my live“ kominn heim eftir helgardvöl hjá besta vininum. Sólin fyllir mann orku og bjartsýni um að nú fari að verða hægt að floga upp um fjöll og firnindi. Gríðarleg frelsistilfinning gerir vart við sig og ég læt mig dreyma um að eiga kofa uppi á heiði þar sem ég get búið allt sumarið. Ræktað grænmeti og blóm, tínt jurtir, litað band og sprangað um á lyngi vöxnum grundum.
Við frænkur ætlum að vera með græna fingur í sumar. Ætluðum að kaupa fræ og sá sumarblómum, gulrótum og hvaðeina á laugardaginn en hér var ekkert hægt að kaupa svo við æddum inn á Akureyri eftir fræjunum. Þar létum við glepjast af páskahérum, servéttum, kertum og öðrum óþarfa. Komum heim örmagna eftir verslunarferðina. Gleymdum að kaupa fræin........
Sérfræðingur að sunnan ætlar að vera okkur innan handar með ræktunina. Hún kemur þegar nær dregur og bansettur snjórinn lætur sig hverfa.

Ingen kommentarer: