Alltaf partý hjá mínum. Nú liggur hann á gólfinu með gítarinn á maganum og syngur með rámri þungarokksrödd svo undir tekur í kofanum. Brynjar aðeins „kúltiveraðri“ situr á sófanum og spilar undir á gítar. Ég held til í greni mínu og krafsa mig í gegn um hverja blaðsíðuna á fætur annarri í ritgerðinni. Ég heyrði aðeins í frumburðinum áðan, sagði honum að ég sæti við ritgerðarskrif. Já sagði hann þú ert búin að gera það síðan 2006.....
Annars fékk ég bréf í gær sem innihélt myndavél og fyrirmæli um að taka myndir af einhverju, hverju sem er, hús, fólk, fílar, bílar að nóttu sem degi. Myndavélinni á ég að skila fyrir miðnætti annað kvöld. Eiginlega það mest spennandi sem á daga mína hefur drifið síðustu mánuði. Og það segir mikið um hversu lífleg ég er í að lifa lífinu lifandi.


Ingen kommentarer:
Send en kommentar