søndag, februar 01, 2009

Allt á kafi í snjó. Piltarnir í Avocado drifu sig á Jónasartún og renndu sér á heimatilbúnu snjóbretti sem áður var hjólabretti. En það eru breyttir tímar. Í Dk. rennir maður sér á hjólabretti, á Is eru engin not fyrir slíkt svo það fær annað hlutverk. Ég er búin að sitja alla helgina við tölvuna og hræra í ritgerðinni. Þannig ætla ég að eyða öllum stundum næstu sex vikur. Æ mig verkjar í axlirnar við tilhugsunina eina saman en ég er alveg búin að sanna fyrir sjálfri mér að þessi ritgerð skrifar sig ekki sjálf og hef ég þó í langan tíma látið reyna á það.

Óvenjuleg helgi á enda, ég hef ekki farið út fyrir dyr.

1 kommentar:

Eydís Einarsdóttir sagde ...

Sæl Anna mín :) Gaman ad sjá ad thú sert farin ad blogga aftur, skemmtilegt ad geta fylgst adeins med alla leid frá Álaborg ;) Annars var ég ad spá í ad senda thér bara mail vid tækifæri!
Bid ad heilsa í bæinn.
Knus Eydís