
Hvar í veröldinni er fallegra en á Húsavík? Dásamleg blíða dag eftir dag. Við mæðgur rusluðumst í göngu í dag enda búnar að borða allt of mikinn ......
Við komum til með að fagna reglu og rútínu nú þegar jólin eru á enda, eða allt að því.
Fyrstu jólin okkar á Baughólnum hafa liðið ljúft og hratt. Ég heyri óminn af söng Borgardætra um ömmu sem er með mér um jólin og svei mér ef hún er ekki hérna - og frændi. Sama andrúmsloft, sama lykt, sama hlýjan..........
Ég er umvafin allskonar jólasveinum, sem fara bráðum til fjalla ....og ég er þegar farin að sakna þeirra







Ingen kommentarer:
Send en kommentar