Við vitum ekkert hvað tímanum líður -búin að liggja á meltunni í þrjá daga og horfa í jólaljósin.
Veðrið í dag var ekki mjög jólalegt, sól og blíða.
Ég þrammaði af stað með myndavélina, gekk upp með Búðaránni

Staldraði við, upp við Hól. Tómt og yfirgefið hús á fallegasta stað í bænum. Ekkert líf, engar piparkökur, ekkert jólatré?
Hélt ferðinni áfram meðfram fjallinu.....
Hús, kofi, kamar höll?

Niður fjallið og meðfram sjónum, í litadýrðina þar
Ingen kommentarer:
Send en kommentar