torsdag, marts 13, 2008

Það rignir og rignir. Minn horfði áhyggjufullur út um gluggann í morgun og hafði á orði að hvergi í heiminum væri veðráttan eins leiðinleg og í Dk. Áðan kom stór pakki, við fyrstu sýn fullur af Seriosi sem er frábært því hér er ekki hægt að kaupa almennilegt Serios. Við nánari eftirgrennslan mátti sjá glitta í gulan páskaunga innan um allt Seriosið. Það verður mikil hamingja þegar minn kemur heim úr skólanum í dag og finnur pakkann frá pabba og Gunnu. Kannski það dragi örlítið úr veðuráhyggjum kauða. Góð hugmynd að pakka páskaeggjum inn í Serios.

Lærdómurinn gengur vel og síðan um daginn hef ég verið ákaflega öguð. Fór á bókasafnið og ætlaði að ná mér í gleðipopp, fyrir valinu varð Beach Boys, sérstaklega lagið “Wouldn´t it be Nice” sem komst á topp tíu listann í september 1966 í Ameríku.

Wouldnt it be nice if we were older
Then we wouldnt have to wait so long
And wouldnt it be nice to live together
In the kind of world where we belong

You know its gonna make it that much better
When we can say goodnight and stay together

Wouldnt it be nice if we could wake up
In the morning when the day is new
And after having spent the day together
Hold each other close the whole night through

Happy times together weve been spending
I wish that every kiss was neverending
Wouldnt it be nice

Maybe if we think and wish and hope and pray it might come true
Baby then there wouldnt be a single thing we couldnt do
We could be married
And then wed be happy

Wouldnt it be nice

You know it seems the more we talk about it
It only makes it worse to live without it
But lets talk about it
Wouldnt it be nice

Þegar ég var búin að hlusta á þetta 15 sinnum í röð var nóg komið af því góða. En humorinn í laginu og textanum kemur mér í gott skap. Sem aftur á móti minnir mig á að ég gekk á eftir 4 ungum mönnum í dag. Þeir voru allir með brækurnar á hælunum þannig að við mér blöstu hvítar og gular nærbrækur. Ég get ekki ímyndað mér að nokkrum þyki þetta flott í alvörunni? Einhver ákveður að þetta sé trend og allir hlaupa eftir því, jafnvel þó þetta sé afar óþægilegt, göngulagið verður eins og búið sé að gera í buxurnar því með einhverju móti verður að halda buxunum á miðjum rassi. Þetta er bara ógeðslega ljótt og skánar ekkert þó sjáist í björn borg streng. Hvað tískan getur leikið okkur grátt.......


Ingen kommentarer: