lørdag, februar 16, 2008

Ætlaði að vera svo dugleg að röfla, en það er svona að vera kona. Helgin snart á enda og við búin að hafa það óskaplega gott eins og venjulega. Við mæðgur höfum spásserað um vötnin við fuglasöng í einmuna vorblíðu. Ég var með myndavélina, eins og venjulega, en átti í einhverjum tæknilegum vandræðum, eins og venjulega, þannig að það fór fyrir mér líkt og þegar ég fór á antikmessuna um síðustu helgi. Þar var ég vopnuð myndavélinni tilbúin að festa dásamlegar minjar fortíðar á mynd en myndavélin neitaði að mynda, sagðist vera búin að fá sig fullsadda af mér og mínum fáránlegu og einskisverðu áhugamálum. Gamalt dasl, skrítið fólk, garn og göngutúrar, “ common” er ekki tími kominn á “refresh”. Aldurinn færist yfir og ég veit ekkert hvernig ég á að haga mér......

Vetrarfríið leið eins og hendi væri veifað. Ég sat yfir skræðunum en minn maður rubbaði sínu af á klukkutíma eða svo. Hann ætlar að taka öflugan lærdómssprett eftir vetrarfrí en annars finnst honum full mikið af sínum tíma fara í skólann.

Í kvöld sit ég og prjóna. Ég fékk svo góða hugmynd á göngunni í dag og varð að drífa mig heim og hrinda henni í framkvæmd. En ég get ekki prjónað nógu hratt, keppist við og er komin með krampa í hægri hönd. Ég fékk mér gult ullargarn, það voru krókusarnir sem kveiktu í mér, held ég. Byrjaði á peysunni að ofan og prjóna laskermar. Útaukningin verður mikið fallegri þegar byrjað er ofan frá. En hugmyndin er svo að bródera í peysuna með svörtum lopa og ég þarf að klára að prjóna peysuna snöggvast svo ég sjái hvort og hvernig þetta kemur út með bróderíið. Ég verð eflaust eins og gul hæna íklædd þessari peysu en það verður þá ekki í fyrsta skipti. Ég var gul hæna á grímuballi í Mosfellssveit þegar ég var sjö eða átta ára. Móðir mín hefur örugglega skemmt sér vel þá, á minn kostnað, því kostuleg var ég í gulum sokkabuxum og sundbol, með bumbuna út í loftið. Ekki ósvipuð little miss sunshine......

En vegna þess að myndavélin brást mér í dag þá ætla ég að nota mynd sem ég tók í haust af Botnsvatni í rigningu

Ingen kommentarer: