
Nú er helgin á enda. Mundi ekkert hvaða dagur var í gær og taldi næsta víst að það væri sunnudagur.
Við fórum ekki út fyrir hús í dag. Ég sat með þá gulu og náði að klára. Held að ég sé ánægð með útkomuna og er byrjuð á annarri í huganum. Sú verður prjónuð í miklu fínna garn. Ég fann fjólublátt eða dumbrautt spinni uldgarn sem uldspinderi i Skive hefur spunnið og litað fyrir Marianne Isager. Hundrað prósent naturuld stendur á miðanum, fra mørke og hvide får. Eldgamalt og kostaði tíkall í genbrug. En það verður að bíða pínu. Í næstu viku er skóli og ritgerð þess á milli.
Axel er búinn að næla sér í pest svo það er ekkert “i love my life” þessa stundina. Hann er að hengjast karl ræfillinn. Ég verð alveg hoppandi galin ef þessi pest leggst á okkur mæðgur líka.



Ingen kommentarer:
Send en kommentar