Við erum klár, jólagrauturinn mallar í stærsta pottinum, hnetusteikin bíður eftir því að komast í ofninn og rassinn á Axeli stendur undan jólatréinu. Unga parið liggur í faðmlögum fyrir framan sjónvarpið og heimasætan góða berst um á hæl og hnakka við að fitja 300 og eitthvað lykkjur upp á prjóna númer 2. Hún ætlar ekki að sitja með hendur í skauti á jólunum.
Við óskum öllum gleðilegra jóla

Ingen kommentarer:
Send en kommentar