Ég er búin að ganga og börnin farin í bíó. Þetta sæta hús er á leiðinni niður að vatni. Það stendur reyndar við umferðargötu og það er galli fyrir íbúana.
Allt frekar blautt og grátt en hlýtt og yndislegt veður
Ýmsir furðufuglar á ferð eins og gengur og gerist á sunnudögum

Það kemur af sjálfu sér þemað í sunnudagsverkefninu mínu, allavega í desember. Grunnurinn verður rauður. Annars hugsaði ég í göngunni að í raun og veru væri maður alltaf að endurtaka sig. Hugsar sömu hugsanirnar aftur og aftur, gerir það sama, talar um það sama, fer alltaf sömu leið, tekur eftir því sama.....
Næsta sunnudag kem ég sjálfri mér á óvart og fer óþekkta leið, horfi á annað en ég er vön og reyni að hugsa um eitthvað annað en venjulega.







Ingen kommentarer:
Send en kommentar