søndag, december 09, 2007

Annar sunnudagur í aðventu og það rignir enn. Börnin liggja á sínu græna og ég hef setið yfir kaffibollanum um stund. Búin er að heimsækja mínar uppáhaldssíður og dvelja um stund í draumaheimi þar sem ég á stórt vinnuherbergi, helst heilan bílskúr, með hillum upp um alla veggi fullum af efnum, garni, tölum, borðum, myndum, pappír, spítum, smellum, nálum, bókum, leir, lími, litum, verkfærum..........................
og komin til baka.

Þessar vikurnar eru nissar á sveimi. Í skólunum eiga allir ( og eru) leyndan nissa sem gefur sínum útvalda eða ,,dregna” gjöf fram að jólum. Það eru reglur um þetta allt í Axels skóla. Að lágmarki skal gefa þrisvar í viku og kostnaður má ekki fara niður fyrir 25. kr á viku. Axels hlutverk er að gleðja unga dömu í bekknum. Í síðustu viku var karlinn veikur í tvo daga. Þegar hann reis úr rekkju á föstudaginn kom unga daman upp að hlið hans og sagði að nú væri hann sko í skuld og ætti að gefa sér tvöfalda gjöf í dag. Minn maður var hundfúll. Hún vissi hver var hennar nissi. Og hann sem var búinn að hafa mikið fyrir því að lauma þessum gjöfum. Mæta fyrir allar aldir og passa að hún kæmist ekki að því hver væri hennar. En allt kom fyrir ekki, börnin voru búin að spotta út hver var hvers nissi. Það er engin spenna við þetta lengur, hvorki fyrir gefandann né þiggjandann, ekkert óvænt eða skemmtilegt. Beinhörð viðskipti sem rúma engan húmor eða leik. Nútíminn og neytsluhyggjan í allri sinni mynd.
Kvennaskólastúlkan er aftur á móti nissi eina karlmannsins í hennar skóla. Hann talar ekkert nema japönsku svo það takmarkar framboð gjafa. En hún er búin að dúllast og útbúa marga litla sæta pakka sem hún hengir hér og þar, merktum kauða. Í gær settist drengurinn við hliðina á kellu, horfði lengi í augun á henni og spurði, ákaflega leyndardómfullur, Mia, did you give me a kristmaspresent?
Hún (eldrauð í framan) jesúsaði sig í bak og fyrir og hélt nú ekki........
Ég á engan leyninissa, heldur ekki Þórir. Ég er búin að stinga því að honum að vera með svona leik hér heima. Hann gefur mér og ég honum. Budget og fjöldi gjafa ekki ákveðið.....

Þoka og rigning, ég ætla að drífa mig út og þramma hringi um vötnin og athuga hvort ég kem ekki auga á eitthvað skemmtilegt fyrir ,,sunnudag með Þóru". Koma svo heim og endurskapa mómentið í ,,annað efni". Þar á eftir verð ég að klappa músunum sem liggja í bunka á borðinu.
Annars erum við ennþá í jólaham, svoleiðis. Föndruðum jólakort og pökkuðum inn jólagjöfum, undir sterkum dönskum áhrifum því allir pakkar eru rauðir og hvítir í ár.
Ekkert farin að baka en búin að smakka allar tegundir af búðarkeyptum piparkökum og búin að fá ógeð.


Ingen kommentarer: