Við erum komin heim eftir tveggja mánaða útilegu. Yndislegt að vera á Húsavík og tíminn æddi áfram. Upp við Botnsvatn var jafn “heilandi” að rangla sem fyrr.
Að koma aftur hingað er eins og að fljúga um loftin blá. Engum háð né bundin. Ókunnug öllum og líður eins og pattaralegri fiskiflugu á vegg.........
Ótrúlega fallegt um að litast í Viborg. Veröldin appelsínugul, minn “yndlings” litur. Blaktandi kertalogi í öllum gluggum enda svarta myrkur klukkan fimm. Ég er búin að byrgja mig upp af kertum með kanel og vanilluilmi. Axel skilur ekkert í þessari jólatilfinningu sem hellist yfir hann þegar hann kemur inn í stofu.
Ætlum til Aalborg á laugardaginn að hitta bróðir og skvísurnar hans.
Mín situr og hannar, saumar og prjónar. Með höfuðið stútfullt af hugmyndum sem hún þarf að hrynda í framkvæmd sem allra fyrst, helst í gær en dagarnir duga ekki til. Aldrei gert neitt eins skemmtilegt segir hún! Það er frábært.
Míns var aftur á móti svolítið hnugginn yfir að þurfa frá víkinni fögru að hverfa en hygger sig á skateboard með Iron maiden í eyrunum.
Ellen kom yfir, var að hendast í gönguferð með hjartasjúklingum og rauða krossinum. Sagðist aldrei sleppa svona ferðum. Var búin að fara í jóga í morgun og átti von á Gerðu vinkonu sinni til kvöldverðar. Við færðum henni Nóa Síríus konfekt, aðallega vegna þess að það var í svo fallegum umbúðum. En þær vinkonurnar ætla að gæða sér á því eftir matinn í kvöld.
Hér er enginn snjór.

Ingen kommentarer:
Send en kommentar