søndag, november 18, 2007

Sunnudagur með Þóru



Humm, út um gluggann......
Klukkan er níu og hvergi sálu að sjá. Það er einkennilegt hvað sunnudagsmorgnar geta verið ólíkir öðrum morgnum. Veröldin svo friðsæl og hljóð. Ég heyri óm af skrafi nágrannanna og ef ég færi fram á gang mundi ég eflaust finna ilm af nýhituðum rúnstykkjum.
Útsýnið úr stofuglugganum hefur tekið töluverðum breytingum frá því í sumar, meira að segja síðan ég kom heim fyrir hálfum mánuði. Þá blöstu við mér appelsínugul tré. Ég elska appelsínugulan lit, hann gerir tilveruna svo fagra og glaðlega. Í síðustu viku tóku hautvindarnir sig til og hreinsuðu laufin af trjánum. Á göngustígunum liggja skaflar af laufblöðum.
Núna blasa við mér strípaðar greinar, svartar í morgunskímunni. Topparnir þaktir litlum svörtum fuglum.
Það er mjólkurlit þoka á himni, rignir sennilega í dag. Veður til að kveikja á mörgum kertum og fá sér kaffi og piparkökur.

Ps. Myndavélin og kvennaskólapían í Ulfborg þennan sunnudag svo myndirnar koma síðar.
Það var í öðru landi, í annan tíma, tveir af mínum uppáhalds mönnum, niðursokknir

Ingen kommentarer: