Í dag var Axel járnaður í neðri góm. Það verða engar karamellur etnar um þessi jól en ég hugsa að hægt verði að finna aðrar tegundir af mæru. Til dæmis ætla ég að baða möndlur og hnetur í sætu því það jafnast ekkert á við það. Fann þessar leiðbeiningar hjá hjartaverndinni.
Brændte mandler og nødder
100 g usmuttede mandler
100 g hasselnøddekerner
180 g sukker1 dl vandKom mandler, nødder, sukker og vand på en stegepande og bring det i kog ved svag varme. Rør i blandingen til sukkeret er smeltet. Lad det koge, til vandet er fordampet, og sukkeret samler sig. Sæt varmen op, men ikke for meget, og lad sukkeret smelte, mens det bliver brunt. Rør hele tiden. Når der lyder små knald fra panden, er mandler og nødder ”brændte” og har fået den ristede, brændte smag. Hæld den brændende varme masse ud på bagepapir på en bageplade eller køkkenbordet. Skil mandler og nødder ad med to gafler, så de køler af enkeltvist. Det skal gå ret hurtigt. Bræk mandler og nødder fra hinanden, når karamel og nødder er afkølet. Servér de brændte mandler og nødder som slik eller snack.
Tip: Opbevar de brændte mandler og nødder i en lufttæt beholder beklædt med bagepapir. De bliver nemt klistrede pga. luftens fugtighed. Fedtindholdet er højt, men det er den rigtige, gode slags fedt, der er i nødder og mandler, meget enkeltumættet og lidt mættet fedt.
Af okkur allt hefðbundið. Við Myrra búnar að koma við í genbrug, einu sinni eða tvisvar....

Við skólasystir erum komnar á fullt í verkefninu sem við tókum að okkur fyrir sunnudagaskólana. Köttur og mús, kunnuglegat og konsulantarnir völdu hefðbundnustu hugmyndirnar af ketti og mús. Ég hafði teiknað nokkrar gerðir sem skólasystir fór með á fund og kynnti fyrir fólkinu. Það er eins með sunnudagskólann og jólin. Fólk kærir sig ekki um neinar breytingar þar. Það er þetta fyrirsjáanlega og hefðbundna sem skapar öryggi og ánægju.
Verkefnið var og er að skapa kattarbúning sem manneskjur af öllum stærðum geta staðið inni í, sex stykki ketti. Eftir að hafa teiknað köttinn tóku við tæknilegar pælingar, höfuðið, stór magi, ekki of heitur búningur, góðlegur og traustvekjandi en kjánalegur og vitlaus, verður að passa mismunandi stórum og breiðum manneskjum, festingar á höfuð og svona mætti lengi telja. Sex mýs, með gleraugu, verða að vera krúttlegar og gáfulegar, geta staðið og setið. Sextán handúkkur, af kisu og mús, c.a 70 cm stórar.
Við erum komnar í gang en langt í land.
Ég elska jólaumstang og er ótrúlega snemma í því núna, saumaði t.d jólanissa um helgina. Við fundum á hann algengasta karlmannsnafn í Dk, jens jensen. Það leið ekki á löngu þar til jens var farinn að ókyrrast uppi á skáp. Þeir geta ekki verið einir þessir nissar, engin sem horfir á þá með aðdáunarglampa í augum. Hann fékk spússu, búsældarlega og góða. Hún fékk algengasta kvenmannsnafnið hér í landi, kirsten jensen.
Nú sitja þau sæt og glöð uppi á skáp og bíða eftir jólunum. Axel er á því að jens sé miklu huggulegri en kirsten sem ku hafa allt of svera handleggi. En hver segir að allar konur hafi granna upphandleggi?
Myrra fer til Kaupmannahafnar á morgun. Þar mun hún fara i det kongelige teater að sjá Chikago. Fraukurnar fá að fara í kjellarann og sjá hvernig búningarnir verða til.
Þórir kemur á fimmtudaginn, beint frá London þeim fína og fræga stað. Við hlökkum til....


2 kommentarer:
Hæ gamla mín :)
Ég hef einmitt verid ad hugsa til thín. Ég er ekki med númerid hjá Axeli en mitt er 40587151
Hringdu endilega í mig, ég fer á mánudaginn
Kv Eydís
Blessuð og sæl, ég hef verið að reyna að hringja í þig en ekkert gengið að ná í kellu... svo þetta er kannski leiðin til að ná sambandi! En tilefnið var að biðja þig enn einu sinni að líta við á Sjálandsgötunni ef þú átt leið um þann hluta bæjarins eitthvað á næstunni? Mér er alltaf eitthvað hálf órótt að vita af blessaðri Sjálandsgötunni mannlausri (kvenlausri) í svona langan tíma.
Nú en annars vona ég að þið njótið ykkar í jólaundirbúningnum í Viborg, mér sýninst það á því sem ég hef lesið. Mér fannst hann góður þessi með upphandleggina ;)
Bestu kveðjur úr Kópavoginum - Katrín
Send en kommentar