Svei mér ef Ellen er ekki komin með kærasta!
Stormaði út rétt fyrir kvöldmat, með mann sér við hlið. Reglulegur kavaler sá ég, opnaði bílhurðina og bauð dömunni sæti. Það er ekki svo ílla fyrir mér komið að ég liggi í glugganum og fylgist með ferðum fólks, ég var að vaska upp, við gluggann.
Annars gæti frásögn af líðandi viku hlotið nafnið, við gluggann..
Upp úr kl. ellefu, hvert einasta kveld, “fretast” hópur ungra manna fram hjá blokkinni á vespum. Hinum megin við götuna er menntastofnun og við hana stórt og mikið bílastæði. Þar burra þeir fram og til baka fram eftir öllu. Ég sé þá út um gluggann og hef látið mig dreyma um að fá mér haglabyssu eða loftriffil, jafnvel bara baunabyssu. Eitthvað til að þagga niður í vespunum. Hér eru margir á svona faratækjum. Gamlar konur keyra þessu eins og á að gera, bara á svona 5 km hraða. Hjólin eru ekki með vél til að keyra mikið hraðar en þessir ungu menn halda greinilega að þeir aki um á Harley Davidson, allavega láta þeir sem svo sé, og ég að ganga til náða, arg.....
Svona vespur eiga ekki rétt á sér, allavega ekki í íbúðarhverfum, nema þar sem fólk er heyrnalaust og mikið rétt flestir eru það í þessu hverfi en ekki ég, ekki ennþá...
Eftir að hafa lamist hér um heilt kvöld með prjónavélina, snúið henni á alla enda og kanta, komst ég másandi og hvásandi að því að það vantaði tvær, afar mikilvægar skrúfur. Fór í dag og keypti þær en frekara stúss með vélina verður að bíða um stund.
Skriflegt kreativitet situr fyrir.
Síðasti skóladagur Axels á morgun. Það er búið að kaupa ostapopp og pepsi max því það má koma með mæru. EN aðeins fyrir tíu krónur. Verði fólk uppvíst að því að vera með slikk fyrir hærri upphæð ku Anni kennari hafa hótað að gera það upptækt! Hér er fólk áhyggjufullt, ostapoppið kostaði fjórtán krónur!
Eftir skóla, verði ostapoppið og eigandinn ekki gert upptækt af skólayfirvöldum, hefst fyrsti í afmæli. Förinni heitið til Aalborg þar sem verður hoppað og skoppað allan laugardaginn.
Ef maður getur ekki leyft sér að hoppa frá ellefu yfir í tólf, þá veit ég ekki á hvaða aldursskeiði er viðeigandi að hoppa.
Myndavélin heldur til í Brúarskála svo það verða engar myndir af "aftur á bak" heljarstökkinu frekar en öðrum stórviðburðum hér.)
Annars líður okkur ekkert betur fyrir framan myndavélina en Gordon Brown virtist líða þegar hann tók við forsætisráðherraembættinu í gær, eða var það fyrradag? Tony Blear kann aftur á móti vel við sig fyrir framan myndavélarnar. Hefði átt að verða kvikmyndaleikari. Ég var að góna á þá meðan ég beið eftir miss Marple, minni konu. Þetta eru líka réttu þættirnir. Ég veit ekki hvað leikkonan heitir en þessi er gömul og best, svo orginal og óforskömmuð. Það fer ekkert fram hjá henni.
Þar sem ég var stödd í London með þeim forsætisráðherrum fór ég að velta fyrir mér hvort frumburður minn væri ekki blautur í fætur þar sem hann veltist um þarna í norðurhluta Bretland? Þar rignir feikimikið.
Hver veit........
Ingen kommentarer:
Send en kommentar