Það eru mærudagar í Viborg hverja einustu helgi. Við sofnuðum við dillandi danstóna neðan úr miðbæ og við búum í norðurhluta bæjarins.
Við fengum góða gesti í gærkveldi en Ásbjörn, sem kominn var til að sækja spússu sína sem haft hefur hér vetursetu, og Sigga komu við. Ásbjörn kom með forláta prjónavél sem frænka erfði og ég hef gapað yfir allar götur síðan. Prjónavélin er um hundrað kíló og afar forn. Ég ætla að athuga hve langt hæfileikar mínir til að skrúfa saman járn, ná........
Prjónavélinni fylgdi fullur kassi af íslensku góðgæti, súkkulaðirússinur, súkkulaði, lakkrís, opal........ og slúðurblöð!
Ég lagðist í slúðurblöðin, með lakkrístaumana lekandi niður munnvikin las ég í Vikunni, elskaðu líkama þinn og njóttu lífsins. Lét lestri lokið þegar kom að greininni um afbrýðisemi og öfund stúlknanna í fegurðarsamkeppni Íslands, o boy
Takk fyrir sendinguna Miss Haganes!!!!!!!!
Um helgina var hérna Hærvejsmarch. Ég fór á bókasafnið á laugardagsmorgni og mætti fjöldanum öllum af fólki í bolum merktum þessu, klætt gönguskóm með vatnsbrúsa um mittið og ég áttaði mig á að þetta væri sennilega eitthvað sem hugsanlega hefði passað mér. Fólk gekk og gekk, og virtist njóta sín á þramminu. Ég gerði það líka, langleiðina niður að bókasafni en þegar þangað var komið líktist göngulag mitt engan vegin taktföstu og rösklegu göngulagi þátttakenda í Hærvejsmarchinu.
Ég var berfætt í “mujýn” skóm...
Það veit ég fyrir víst að líðan mín var nákvæmlega sú sama, og öfundsjúku stúlknanna í fegurðasamkeppninni nei ég meina vondu stjúpsystranna í Öskubusku sem skáru af sér tær til að passa í skóinn fína, þegar á bókasafnið var komið. Við illan leik tóks mér að staulast heim og grenjandi dróg ég af mér blóði drifna skóna.
Nú veit ég ekki hvernig ég fer að því að marchera rundt om söen í dag.
Á föstudaginn lauk mínum skóla, ég fór með Ellen vinkonu minni á handavinnusýninguna í Skals. Margt fallegt þar að sjá. Sigga átti náttúrulega bróðurpartinn af allri handavinnunni!!
Ellen keyrði eins og herforingi. Bróðir gerði grín af mér fyrir að láta konu á níræðisaldri keyra, en komumst fljótt að þeirri niðurstöðu að af tvennu íllu væri það skárra en að hafa mig undir stýri. Ég gæti séð eitthvað merkilegt og gleymt með det samme að ég væri að keyra.
Ég sé að gavin portland eru í Brighton í kvöld, London á morgun síðan Nottingham og......þann áttunda koma svo Þórir og Júlía til okkar. Við Axel, sem snart verður tólf ára og telst þar með fullorðinn hjá Flugleiðum, erum að míga á okkur af spenningi. Höfum ekki séð þetta fólk síðan um jól.
Fyrsti í tólf ára afmæli er um næstu helgi en þá ætlum við að verja heilum degi í Jumbolandi í Aalborg. Þar á að hoppa og fara í heljarstökk daginn út. Bróðir og Sunnevu er boðið með.
Vika eftir í skólanum hjá Sela. Það verður bölvaður ófriður síðustu vikuna, udflugt hvern einasta dag.
Það rignir þvílíkt í dag, þrumur og eldingar, yndislegt veður og ég verð að komast út.
Það er bara þetta með tærnar..............

Ingen kommentarer:
Send en kommentar