Það er fimmtíu stiga hiti, úti og inni.
Axel er eins og lítill grís, bleikur á litinn og gefur frá sér ýlfur ef manni verður á að rekast utan í hann. Hann fór í vesterbadet i gær, óvarinn fyrir blessaðri sólinni og kom svona heim. Það flögraði ekki eitt augnablik að móður hans að setja sólarvörn á hvítan manninn sem aldrei fyrr hefur sjálfviljugur verið úti í sól.
Núna stendur yfir Viborg maraþon, hægt að hlaupa hálft eða heilt maraþon eða taka þátt í tíu kílómetra skemmtiskokki. I fyrra var hitastigið það sama og nú. Fólk hrundi niður á skemmtiskokkinu og sjúkraflutningamenn höfðu ekki undan að hirða það upp. Í ár er búið að gera fyrirbyggjandi ráðstafanir, það standa menn með vatnssprautur hringinn í kring um vatnið, tilbúnir að sprauta á eða uppí þá sem virðast að niðurlotum komnir. Mig langar að fara og kikka á þetta en litla svínið mitt getur ekki farið í bol og ekki getur hann farið ber út, svo við huggum okkur hér heima. Hann lemur gítarinn og semur ódauðleg tónverk, ég floga af stað með tuskuna á milli þess sem ég sit á stólnum góða og skrifa. Alveg að verða búin með formidling ritverkið.
Rigspolitiet stólinn minn, aha hljómar eins og Alvar Alto eða Arne Jakobsen. Ég er mætt til leiks í kapphlaupinu um “hver á mest af dauðum hlutum”.

Veit varla hvort það á við mig. Hef alltaf verið á móti öllum keppnum. Kannski varnarháttur, er aldrei best né fyrst í mark og þá finnst mér þetta bara púkalegt og leiðinlegt. Ef ég aftur á móti væri mest og best þá væri ég sjálfsagt óð í að keppa um alla skapaða hluti.
Hér hefur allt verið brjálað í kring um fótbolta. Mikil umræða um hvað hægt er að gera. Stuðningmenn hafa gengið berserksgang á leikjum, gengið í skrokk á fólki í kring um sig eða reynt að drepa dómarann! Þvílíkur stuðningur af svona mönnum. Það á auðvitað bara að banna fótbolta. Það eru greinilega fleiri en ég sem höndla ekki keppni af neinu tagi. Det må man sige.

Nú en Rigs stólinn, hljómar betur svona, er þeim eiginleikum gæddur að ég bókstaflega límist við hann. Kemur sér vel í sumar............
Ingen kommentarer:
Send en kommentar