søndag, marts 18, 2007







Varla hundi út sigandi í dag. Á efstu hæð gnauðar og skröltir í öllu. Eina stundina glampandi sól, þá næstu grenjandi rok og rigning. Maður bara áttar sig ekkert á þessu...........
Það er sunnudagur í okkur, við erum löt.
Ég búin að sitja með prjónana frá átta í morgun, kláraði bol á barnapeysu sem ég svo rakti upp. Er að byrja að nýju.
Við erum í prjóni í skólanum. Fengum að setja okkur markmið og velja hvað við vildum læra. Það eru því allir að vinna að sínum einstaklingsbundnu markmiðum. Virkilega spennandi vinna. Ég ákvað að prjóna kanta. Byrjaði á þvi að prjóna 15 stk. Líka að læra að lesa úr enskum og dönskum “uppskriftum”. Síðan ætlaði ég að búa til minn eigin kant og barnapeysu í framhaldi af því. Nú hef ég náð lendingu með kantinn en restin af peysunni hefur ekki verið eins og mér hugnast. Og þá rekur maður upp. Ég fékk innblástur af litunum og forminu á peysunni þegar ég fletti einhverjum pésa um kaffibaunir. Rauðlaukur og gúrka. Litirnir og formin ótrúlega frískandi og sumarleg. Ég er svo litaglöð um þessar mundir og þá liggur beint við að hanna eitthvað á börn. Þar hefur maður líka leyfi til að sprella og leika sér.



Og talandi um uppskriftir. Ég komst að því á síðasta ári að ég get ekki farið eftir uppskriftum. Sama á hvaða sviði. Miklu skemmtilegra að búa til uppskriftir og segja öðrum hvernig þeir eigi að gera hlutina. Áramótaheitið mitt var að fara eftir uppskrift.... að minnsta kosti einu sinni í viku.
Súsanna lánaði mér uppskriftabók sem hún sagði góða og núna ætla ég að elda þennan rétt upp úr bókinni.

Ingen kommentarer: