
Allt er að falla í fastar skorður eftir afar langt jólafrí. Við höfum að vísu verið afskaplega félagslynd alla helgina, enda engin ástæða til að fara of skart af stað í breytta, bætta og áramótastrengda lifnaðarhætti. Ekki það að ég hafi strengt þess heit að umgangast ekki fólk árið 2007, en ég ætla hins vegar að koma ákaflega miklu í verk og þá, humm.........
Bróðir kom með systur og það var langt síðan við höfðum sést. Ég var også komin með langan lista fyrir handy man :o
Skólastúlkan í Skals fauk yfir hæðir og hóla, med glassúrhúðað hindberjavinarbrauð.
Laugardagskvöldinu vörðum við í huggulegu matarboði hjá Súsönnu og Síu, í hinum enda bæjarins.
Í morgun risum við úr rekkju ákveðin í að hefja agaða lifnaðarhætti. Ruddumst út og þrömmuðum í kringum vatnið. Regnið lamdi okkur sundur og saman, vinda mátti Sela enda karlinn léttklæddur því sólin hafði blikkað hann þegar lagt var af stað og tælt hann út á peysunni.
En við horfum vonbjört til framtíðar, vitum að það tekur tuttugu og einn dag að búa til venju. Nutum þess að snuddast heima og þurfa ekki meira út í dag.
Vinkona mín á móti er farin að setja “viborg folkeblad” inn um lúguna hjá okkur. Fyrsta dag eftir heimkomu hafði hún skrifað, “velkommen hjem, hilsen Ellen”, efst á blaðið. Við hittumst svo á ganginum í fyrradag, þá var gæskan uppá klædd og máluð, með prjónana í poka. Var að fara í matarboð en gaf sér tíma til að sýna mér prjónlesið. Hún er svo flott, sæt, brosandi og lífsglöð. Ég kæmi sennilega ekki að tómum kofanum hjá henni færi ég að grafast fyrir um galdurinn á bak við eilífan æskublóma, innri ró og lífsgleði.
Ég kann vel að meta rigninguna. Sakna veðráttunnar heima ekki baun. En eitthvað gæti farið að kólna hérna í vikunni, og kannski kemur vetur.........
Ég var að lesa um danska listamenn og fann einn sem mér þykir afar skemmtilegur. Bjørn Wiinblad (20. september 1918 - 8. juni 2006) var en dansk keramiker og maler, der internationalt blev berømt for sine karakteristiske værker, der findes i millionvis af hjem over hele verden.
Man kan se højdepunkterne i hans arbejder på bl.a. Victoria and Albert Museum i London, Museum of Modern Art i New York og på Kunstindustrimuseet i København.
Wiinblad var oprindelig udlært typograf, men fandt hurtigt ud af at det var kunstnervejen, der havde hans interesse og blandt sine mange talenter, udviste han også habile evner ved klaveret.
1 kommentar:
hæ gaman að sjá bloggið þitt...rambaði óvart inn á það,
sjáumst í skólanum
Send en kommentar