søndag, maj 07, 2006

Uppskriftir

Enn einn sunnudagur að kveldi kominn.
Það er komið vor, yfir tuttugu stiga hiti í dag. Ég hljóp sama hring og venjulega en nú brá svo við að míns var nærri dauð, mér sortnaði fyrir augum og ég drógst áfram með erfiðismunum. Komst heim og var rauðari en jólaepli það sem eftir lifði dags.

Dulítið erfiðir dagar fyrir skólastúlkur á ýmsum aldri. Vefnaður krefst vitsmuna, einbeitingar, stærðfræðigetu og vandvirkni. Ég verð aldrei svo gömul að ég uppgötvi ekki eitthvað nýtt í eigin fari. Líkt og ungabarn sem skoðar fingur sína daginn út og inn tel ég mig hafa krufið persónu mína með naflaskoðun frá öllum hliðum, áratugum saman. Uppgötvaði samt á dögunum að ég hef aldrei á ævinni getað farið eftir uppskrift.
Þegar ég t.d. prjóna geri ég það af fingrum fram, eða eftir eigin uppskrift. Auðvitað er útkoman happadrætti eitt og oftar en ekki misheppnuð afurð. En ég fæ útrás fyrir eitthvað, fer eigin leiðir og ræð mér sjálf.
Mér finnst leiðinlegt að búa til eitthvað eftir og með uppskrift frá öðrum.
Ég er bara svona óskaplega kreatív í eðli mínu. Þarf fyrir vikið oft-ast að gera hlutina tvisvar, fyrst mistökin og svo.....

Maður verður að þekkja regluna til að geta brotið hana, sagðann...
Ég verð að læra að fara eftir uppskriftum, fyrirmælum. Læra aðferðir og fara eftir þeim.
Ég hef hvorki eldað né bakað nákvæmlega eftir uppskrift.
Vefnaður krefst nákvæmni og þar verður maður að fara eftir uppskriftum og útreikningum.

Æfði mig í dag. Bakaði tvær kökur, nákvæmlega eftir uppskrift.
Eldaði Rauðan karry workret med gröntsager, næstum alveg eftir uppskrift.

Velti því samt fyrir mér hvort uppskriftir og fyrirmæli geti ekki orkað hugmynda og sköpunarútrásarlega hamlandi?
Handverk eftir útreikningum og spekulasjónum er oft svo vel gert að hvergi er þar að lesa vott um persónu þess sem það skapaði.
Teikningar barna til 8 ára aldurs eru oftast fullar af karakter og einlægni listamannsins. Um miðjan aldur taka þær að líkjast fyrirmyndum úr sjónvarpi og tölvuleikjum, persóna listamannsins verður fjarlægari.

Veit ekki.........

Stúlkan tók samræmd próf í vikunni, lifði það af en taldi það danska mun léttara en hið íslenska.
Nú taka dönsku samræmdu prófin við og svo skólaprófin sem verða auðvitað tekin munnlega eins og hér er siður.

Seli hvorki át né svaf þessa vikuna. Hann varð heltekinn af þráhyggju. Í Fötex var tilboð á draumasímanum.
Ég fékk ótrúlegustu tilboð.
Allt hans sparifé átti að ganga upp í nýja símann.
Ég átti að kaupa gamla símann sem ÉG gaf honum í jólagjöf, hann ætlaði að vaska upp og fara út með ruslið það sem eftir væri af ævinni, bara að hann fengi símann með myndavélinni, blikkandi ljósunum og upptökuhæfileikanum.
Talandi um að foreldrar séu þrælar barna sinna, þrælar tískunnar, skjalfandi strá í heimi markaðslögmála......

Ég keypti símann.

Ingen kommentarer: