Tók allar bækur um prjónaskap frá fornu fari, í Danaveldi.
Og geisladiska.
Er í errinu, tók Rasmus og Red Hot Chili Peppers. Bró segir piltana í Red H.C.P vera eldgamla, jafnvel bara á aldur við mig. Og þeir hafa verið lengi að, þekktir fyrir að vera nánast berrassaðir á sviðinu. En það er ekki það sem heillar mig. Ég er búin að vera að hlusta eftir þeim í leyni. Kann vel við þá og langaði að hlusta meira en ég hélt að þetta væri einhver hljómsveit sem unga fólkið og heimasætan ,,fíla'' og ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að spyrjast fyrir um þetta heima fyrir. Á alltaf á hættu að vera kölluð ''wannabe''
Nú þar sem ég var þarna í errunum rak ég augun í essin. Fremst í bunkanum var Simply Red, Createst hits.
Ég mátti til með að taka hann því við hann á ég minningar sem ylja mér.
Minningarnar tengjast '' the salvation soldier''.
Þegar hann var á öðru ári var ''Holdin back the years'' med Simply Red hans yndlings sang. Vopnaður tennisspaða ( gítar), hans aðalmerki fyrstu fimm ár ævinnar, söng maðurinn, holdin holdin holdin, af þvílíkri innlifun að furðufuglarnir í skóginum klökknuðu.
Þar sem ég heyri aldrei í þessum soldier þá held ég bara áfram og velti mér upp úr því sem einu sinni var.
Holding back the years, thinking of.......
Síðar meir spilaði tennisleikarinn undir hjá Dire straits.
Á tíunda til tólfta ári varð soldier heltekinn af warhammer veikinni.
Maðurinn er jú ekki mjög æstur í eðli sínu en hann er ofsatrúar þegar kemur að einhverju sem þessu. Þarna sat hann lon og don og spilaði eða dedúaði með warhammermanneskjur.
Móðir hans hafði áhyggjur af þessu hreyfingarleysi og keypti Latabæ. Hún sá fyrir sér að nú yrði piltur alelda. Kæmi til með að þrá hreyfingu og líkamsrækt við undirspil og dásamlegan gleðisöng þeirra sem haldnir eru hinum sanna ungmennafélagsanda.
En allt kom fyrir ekki.
Hafi eftirfarandi máltæki verið samið um einhvern sérstakan, þá var það um hann.
''Þegar bólar á hvöt til að gera eitthvað , leggst ég niður og bíð eftir að hún líði hjá''
Þegar soldier gekk til hvílu á kvöldin setti hann æfingarprógramm Latabæjar á fóninn, lagðist svo til svefns og svaf undurvært, undir þessu síendurteknu, hele natten.
en
I'm keep holding on
I'm keep holding on
That's all I have today
that's all I have to say
Ég er að taka próf, heima.
Við fengum þema sem heitir tekstill án marka eða landamæra (grænseløse tekstiler). Síðan velur hver og einn nemandi sitt kjörsvið til að taka prófið í eða á. Ég valdi prjón.
Ekki leiðinlegt það, og svo meget praktiskt því það get ég unnið að mestu heima.
Ég ætla að blanda saman kúltur og tækni þriggja landa, nú stendur yfir heimildavinnan. Hljóp við fót á eftir afskaplega huggulegum pilti, á bókasafninu. Bækurnar sem ég þurfti á að halda voru auðvitað með hinum fornbókmenntunum í kompum og kjellurum neðanjarðar, ég þurfti því aðstoð við að grafa þær upp:)
Blessuð sólin elskar allt, heimasætan fór héðan kl. 8 í ballerínubúningi sem við mæðgur græjuðum, ég fékk reyndar líka að sauma á vinkonu hennar, sú er álfur. Stúlkan bloggar um þetta sjálf, allavega merkilegur dagur og spenna í loftinu hér, strax kl. sex í morgun. Hún að undirbúa sig og gullabarnið agitator fyrir því að hans bekkur fengi mest af karamellum frá henni. En það er nebbla siður hér, að níundi bekkur kasti kveðju á nemendur skólans, með karamellum. Ótrúlega mikið um sælgætisát, flödebollur og hygge þetta og hitt, í skólanum. Merkilegt, vegna þess að hér etur fólk stöðugt rúgbrauð og gulrætur?
Ég skilaði ''vefnaðardraslinu'' mínu. Gat ekki unnið neitt af því skammlaust svo ég er ikke tilfreds med det, men..
Þetta eiga að vera púðar og kludetæppe. Mest höfum við þó gert af prufum.




Nú er það dönsk prjónahefð.
Med venlig hilsen
Ingen kommentarer:
Send en kommentar