Las viðtal við Þóri hér,
http://grapevine.is/undirflokkar.aspx?id=1072
Góð mynd af þér drengur og fínt viðtal en ég vona að þetta með að á Húsavík séu margir hvalir og lítið annað sé frá fáfróðum blaðamanninum komið!
Þeir þekkja ekkert nema Reykjavík þessir blaðamenn, hafa aldrei út á land komið og halda að höfuðborgin sé nafli alheims, fuss og svei :)
Svona umræður um að einn staður sé öðrum betri eru alveg voðalegar, koma blóðþrýstingi margra upp að hættumörkum. Mestu skiptir hvernig okkur líður svona persónulega með okkur sjálf. Og kannski hefur staðurinn sem við búum á ekki alltaf svo mikið með það að gera. Hitt er svo annað mál, að Húsavík af öðrum bæjum ber.
En fyrir handavinnuvinkonurnar mínar þá er ég búin með sommerfugletröjuna og hún lítur svona út. Átti erfitt með að hemja sköpunargleðina og þetta varð peysusett, gasalega lekkert :P
Þetta er fyrir Karen Noe(slóðin hennar er á síðunni minni) úr garni sem hún selur og framleiðir, ull og þvílíkt hráefni. Ullin er svo mjúk og létt að ég ráðlegg fólki að leggja á sig ferðalag til Danmerkur til þess eins að kaupa þessa ull í síðbrókina sína. Ef ekki, þá er lítið mál að panta af netinu. Hún selur mest þannig. Ekkert mál að prjóna en að skrifa uppskriftina var verra :(


Þá er það útsaumurinn. Þar sem ég er bara kona þá kann ég ekki.....jæja eða nenni ekki að finna út úr því hvernig ég set inn aðrar síður hér til hliðar svo ég ætla að skrifa hér urlið af nokkrum geðveikum útsaumssíðum http://www.embroiderersguild.com/stitch/
http://www.embroiderersguild.com/stitch/projects/monoprint/monoprint.html
http://www.kaydennis.co.uk/Kits.htm
Finnsk síða http://www.ullapohjola.fi/
http://website.lineone.net/~teresa.searle/
Sænsk heimasíða www.broderiakademin.nu
Fleiri síður síðar, en ég keypti þessa útsaumsbók á dögunum og hún er dásamleg. Allar þær hundakúnstir sem hægt er að gera með nál og þræði. Það er svo mikið til af bókum með handavinnu hér að erfitt er að hemja sig. En ég mæli með þessari bók fyrir þá sem sauma því hún er mjög vönduð og ýtarleg. God arbejdslyst
2 kommentarer:
Æ úpps, ég ætlaði sko ekkert að vera dónaleg, bara svona fyndin. Var ekki að segja skoðun mína þarna, bara bauna á Þóri, en vissulega á maður að vanda sig þegar maður röflar á internetinu. Maður er jú ekki bara að tala við sjálfan sig....
Takk fyrir heimsókina :)
úff, ég meina heimsóknina
Send en kommentar