Við bróðir fórum í bíó í gær. Hann fékk að ráða mynd enda var það hann sem hafði haft áform um að fara í bíó, ég tróð mér með. Það hefði þó alveg verið eftir mér að ákveða að nú færum við á rómantíska mynd og það hefði alveg verið eftir honum að gegna því. En það slapp til og við fórum á svarthvíta heimildarmynd um Bítlaband danskra blómabarna, Gasolin.

Það voru sjö ,,hippar'' í fyrsta sal, og svo við, með popp og kók.
Við poppkaupin vorum við hvött til að kaupa tvö kíló af poppi í stað þessa eina sem við höfðum í höndunum. Það var víst miklu billegra að kaupa sekkinn!
Hlýddum því en vorum svo lukkulega að sturta úr honum ofaní sæti áður en við náðum að hlamma okkur niður. Og þarna sátum við, næstum því eins og í kirkjunni forðum, í vitlausum sætum, með poppfjallið á milli okkar.
Myndin var fín, alltaf gaman að heyra sögur af fólki.
Gasolinmenn hófu samstarf um 1969. Og voru að í u.þ.b. 8 ár. Þeir urðu heimsfrægir hér í Danmörku og reyndu fyrir sér í hinni stóru Ameríku. Þar áttu þeir ekki stóran aðdáendahóp svo heim héldu karlar. Samstarf söngvarans og gítarleikarans var stormasamt. Þeir höfðu gjörólíkar skoðanir á því hvernig tónlist bandið ætti að spila. Gítarleikarinn hafði hlustað á blus, var að mínu mati, dæmigert barn síns tíma. Klæddist rósóttum buxum, mussum og tréklossum, hafði hár niður á herðar. Hann vildi spila og semja tónlist í anda þess sem var að gerast á áttunda áratugnum. Hann var töffari. Söngvarinn var orginal. Hann bjó til texta, sat uppi um nætur og samdi tónlist sem hann svo bar undir hina meðlimi þegar birta tók. Ég upplifði hann sem karakter sem hafði gríðarlega mikla þörf fyrir að skapa, var drifinn áfram af einhverju sem kom innra frá honum en ekki löngun til að gera öðrum til geðs eða verða frægur. Hann var alltaf hallærislegur, klæddi sig ekki í takt við tískuna, stutt hár á meðan allir hinir voru með sítt. Þetta virtist ekki gert til að vera öðruvísi. Hann var náttúrulega öðruvísi, virtist ekki verða fyrir áhrifum frá umhverfinu. Og lögin og textarnir voru hreint ekki í takt við það sem var að gerast á þessum tíma. Þessir tveir andstæðu pólar börðust stöðugt meðan á samstarfinu stóð. Spenna og ágreiningur getur verið gríðarlega skapandi andrúmsloft. Jarðvegur þar sem nýjar hugmyndir kvikna og verða að einhverju, nái fólk að vinna með elementið. Einhver áhrif hafa svo hinir hljómsveitarmeðlimir haft á það. En þetta voru jaxlarnir í bandinu.
Hljómveitin hætti þegar tími orginalsins rann upp, hann hafði ekki lengur þörf fyrir bandið. Eins og bassaleikarinn sagði, það var ekkert eftir, þeir voru búnir með allt. eldurinn logaði ekki lengur. Gítarleikarinn var hins vegar á þeirri skoðun að nú fyrst gætu þeir farið að gera eitthvað af viti, söngvaskáldið loks farið að semja eitthvað sem glóra var í.
Söngvaskáldið, orginalinn er enn að gera það sama og þarna, hann varð þjóðsöngvari Dana.
Skoven den er lukket
Fuglene er stille
Pappa han snorker
Som en krokodille
Annars má lesa um þessa menn hér http://www.kjukken.dk/
Ég var eins hugsi og hugsast getur þegar heim var komið. Það er þetta með að vera sjálfum sér samkvæmur. Fólk sem verður ekki fyrir svo augljósum áhrifum frá umhverfinu. Það hrekkur aldrei úr karakter og nær að virkja og vinna með þetta einstaka sem allir hafa innra með sér. Og nær oftar en ekki árangri í lífinu.
,,Bara lummulega rómó''. texti eftir skáldið, svcna fyrir vinkonurnar mínar sem eru......... :)
BARE MIG
Tekst:Kim Larsen
Hvis du en morgen har det rigtigt skidt
og det er mandag og regnvejr
og der er én der pludselig blinker til digdu wo' la
- så er det bare migdu wo' la
- så er det bare mig
Hvis du har travlt,
ja og bussen smutter fra dig
og der er mindst et kvarter til den næste
og der er én der siger skidt med detdu wo' la
- så er det bare migdu wo' la
- så er det bare mig
for jeg er helt vild med dig
og vader rundt og tænker på dighver gang
jeg ser én der ligner dig lidter jeg på den igen
Hvis du åbner din taske for at finde en smøg
og du kun finder en regninghvor
der står skrevet at jeg elsker digdu wo' la
- så er det bare migdu wo' la
- så er det bare migfor jeg er helt vild med digog vader rundt og drømmer om dighver gang jeg o.s.frv.
Ingen kommentarer:
Send en kommentar