onsdag, marts 15, 2006

Kolonihave

Það skein sól um helgina, en arggggg hvað það var kalt.
Ég drattaðist út úr húsi, með The Beatles í eyrunum. Búin að spora hring, svo ansi góðan. Helmingur leiðarinnar með temmilegum halla. Men des´værre allt malbikað. Ekkert jafnast á við Botnsvatnshringinn, nema kannski Himnaríki........
Niðursokkin í ,,when I find myself in times of trouble, mother Mary comes to me........’’
var ég skyndilega stödd utan hringsins, á annarri plánetu. Úti í sveit?
Mínútu áður hafði ég þrammað eftir göngustíg, samhliða hraðbraut, í hverfi samsettu af einslitum múrsteinsblokkum i löngum röðum.
,,speaking words of wisdoms...’’ Kolonihave? Húsin stóðu þarna og ég gat ekki betur séð en að bros léki um skakka og litskrúðuga glugga.
Á góðum degi hefur regnboginn dottið yfir þetta hverfi.
Kóngarnir voru heima í múrsteinsblokkunum. Húsin eða hallirnar stóðu auðar, hús, kofi, kamar, höll, biðu eftir vorinu, eins og ég...

Þegar fólk ætlar virkilega að njóta lífsins, slappa af og hugga sig fer það hingað. Hér velur fólk að eyða frítímanum sínum.

Að ganga um í kolonihverfi, staðsettu inni í miðri borg, við hliðina á hraðbrautum og húsaröðum múrsteinsblokka, þar sem aðalskipulag borgarinnar ræður ríkjum, er upplifun sem erfitt er að lýsa.
Koloni er en sted som en gruppe personer tager til for en kortere tid. Þar ríkir kaos. Ekkert hús eins, garðarnir einstakir. Þar virðist fólk fá útrás fyrir kreativitet, allir á sínum forsendum :). Þar eru öll norm um beinar línur og fagurfræði arkitektúrs brotin.
Þar er frelsi og rúm til að hugsa. Umhverfi sem skaber ideer og tanke. Eller rum der som ideerne skabest på baggrund af tanker...
Ég held að kolonihave komi til með að hafa mikil áhrif á vangaveltur mínar næstu vikur :)

Ungfrú Sunneva átti afmæli í gær, varð ellefu ára stúlkan. Við fórum í afmælisboð og skemmtum okkur konunglega fram eftir kveldi. Axel fer aftur í afmæli á sunnudaginn, það er kun for drenge og verður haldið í Las Vegas, í lasergamehöll. Flestir í Axels bekk virðast eiga afmæli í mars svo það er mikil afmælisvertið yfirstandandi þessa dagana.

Annars allt í rólegheitum.

Ingen kommentarer: