Í skólanum er skemmtilegt að vera.En tíminn æðir áfram eins og honum einum er lagið. Hér er þoka á öllum vígstöðvum. Loftið mettað umræðunni um Muhamed eða þeim ófriði sem teikningarnar í Jyllandsposten ullu, eða voru það þær sem komu þessu af stað........
Uppsöfnuð reiði og gremja braust út þegar tækifæri gafst til að beina henni að einhverju öðru en því sem hún í raun og veru snýst um.
Skyndilega varð Danmörk nafli alheims og blórabögull fyrir ótrúlegustu hluti. Við búum í sama bæjarhluta og flestir múslimar í þessari borg. Ekki get ég ímyndað mér að þeim, frekar en öðrum, líði vel undir þessum kringumstæðum.
Það á að virða trúarbrögð annarra og ekki eru þeir öfundsverðir stakkels teiknararnir sem fengnir voru til þess að teikna þessar myndir. En hefði einhver getað ímyndað sér svona öfgafull og geðveik viðbrögð?
Myrra er í startholunum, tilbúin til brottfarar við fyrsta tækifæri. Axel segist nú frekar vera orðinn leiður á þessu endalausa tali um Múhamed og vonar að eitthvað skárrra dúkki upp.
Og þá verður það fuglaflensan. Með vorinu þegar farfuglarnir leggja upp í leiðangur............
Ég ætla að fara á þorrablót hér bráðum. Tilhugsunin um sviðakjamma, harðfisk, hangiket og flatbrauð er ekki slæm. Hér er matur ekkert sérstaklega skemmtilegur. Valur segir Dani ekki hafa nokkurn matarkúltúr. Það er nú eitthvað annað en við með okkar signa fisk, kæstu skötu, skyrhræru, saltket, sviðahausa, hrútspunga og slátur.
Krakkarnir sakna þess mest að fá ekki serios, það er ekki hægt að kaupa hér en pizza er alþjóðlegur uppáhaldsréttur allra svo það væsir ekki um þau.
Hjá þeim var viku þemavinnu að ljúka. Axels árgangur vann með salt en Myrru með kemiske stoffer.
Ég brodera, erum að byrja á oppgave sem heitir ..bord dek dig selv''. Byrjum á ideudvikling varðandi verkefnið og leggjumst í hönnun og spekulasjónir varðandi eitthvað á borð. Ég ennþá að lesa og skoða hina mexikönsku Fridu Kahlo, undir áhrifum af notkun hennar á sterkum litum, vel að gera dúk, langan og mjóan með stórum appelsínugulum blómum. Hann verður kannski aldrei brúkaður en gaman að gera eitthvað annað en pent.
Ingen kommentarer:
Send en kommentar