torsdag, december 29, 2005

Sneestorm

Þegar ég stóð upp í morgun var allt á kafi í snjó....... hér, og ég sem taldi mig hafa flutt til heitari landa.
Krakkarnir fóru til Islands í gær. Þau voru á ferðalagi frá 11 til 24.55, langt og strangt ferðalag enda skapið úfið þegar þau komu á leiðarenda. Eins og við var að búast hófst ferðin með tremma, ekkert sæti laust í lestinni og fyrir höndum voru 5.klst, standandi vandræði. Ég var ekki kvödd með kossi.
Axel hafði gert stórinnkaup í sjoppunni, þar á meðal ostapopp, systur sinni til mikillar ógleði. Frændi hans sem áður aflaði tekna sem svínahirðir hér um sveitir og ferðaðist með almenningsvögnum úr og í vinnu, ráðlagði Sela að hlamma sér í fyrsta auða sætið og rífa upp ostapoppið. Lyktin yrði þess valdandi að allir tækju stóran sveig frá sætinu., hvort sem þeir ættu það pantað eður ei. Því er skemmst frá að segja að þetta gekk eftir, hafði enda sá sem gaf ráðin góða reynslu........
Tveir dagar eftir af ári 2005

Ingen kommentarer: